- Auglýsing -
Eldur kom upp á Stórhöfða snemma í morgun en slökkviliðinu barst tilkynning um eldinn upp úr klukkan fimm. Þegar slökkvilið kom á vettvang leit úr fyrir að eldurinn logaði í vörubrettum fyrir utan húsið en samkvæmt heimildum sem Vísir tilgreinir logaði eldurinn í kjallara hússins þar sem er stórt lagerrými. Slökkvistarfi lauk um klukkan sjö og gekk vel að ná tökum á eldinum. Skemmdirnar urðu að mestu leiti í kjallara hússins og tókst slökkviliði að hindra frekari útbreiðslu.