Sölvi Tryggvason gefur út bók á næstu dögum sem fjallar um kærur kvenna gegn honum sem seinna var vísað frá, og þann hvirfilbyl sem skapaðist í kjölfar málsins.
Fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason gefur út bókina Skuggar – Saga falls, útskúfunar, upprisu og uppgjörs, hjá bókaútgáfunni Sögur útgáfa, á næstu dögum en á miðvikudaginn heldur hann útgáfuteiti í Pennanum Eymundsson á Skólavörðustígi.
Fyrir tæpri viku sögðu fjölmiðlar frá því að lögreglan hefði hætt rannsóknum á öllum þremur málum á hendur Sölva en jafn margar konur kærðu hann fyrir ofbeldi. Málunum hefur sem sagt öllum verið vísað frá.
Í lýsingu á viðburðinum á Facebook stendur:
Skuggar segir frá örlagaríkum tímum í lífi Sölva. Ósönn slúðursaga fór á flug á samfélagsmiðlum og fjölmiðlar hentu hana á lofti. Við tók hvirfilbylur samfélagsumræðunnar sem jókst enn með tilkynningu um að konur hefðu kært Sölva til lögreglu. Í bókinni reynir Sölvi að skilja hvað gerðist og bregður um leið ljósi á sína dýpstu skugga.