Karlmaður um þrítugt var í gærkvöldi úrskurðaður í ellefu daga gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness, eða til 17. apríl, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
Maðurinn er grunaður um að hafa orðið móður sinni að bana, og er banameinið talið vera hnífstunga.
Sjá einnig: Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna andláts í Hafnarfirði
Lögreglu barst tilkynning um klukkan hálf tvö aðfararnótt mánudags og fannst konan, sem var um sextugt, látin á heimili sínu í Hafnarfirði þegar lögregla kom á staðinn.
Maðurinn var handtekinn á vettvangi. Annar karlmaður sem var einnig handtekinn á vettvangi er laus úr haldi lögreglu.