Lögregla var kölluð út í gær í hverfi 109 en þar hafði ökumaður gröfu ekið á brú. Maðurinn var hvorki í belti né með réttindi til þess að stjóra slíkri vinnuvél. Í kjölfarið var maðurinn fluttur á bráðadeild til aðhlynningar en hlaut hann minniháttar áverka í slysinu. Í hverfi 105 hringdi íbúi á lögreglu og tilkynnti um dauðan mink sem lá á götunni. Ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvort minkurinn hafi verið fjarlægður af vettvangi.
Þá sinnti lögregla tveimur útköllum vegna þjófnaðar. Hið fyrra átti sér stað í miðbænum en þar hafði farsíma verið stolið og hið seinna átti sér stað í Mosfellsbæ. Þar höfðu óprúttnir aðilar farið inn í verslun og stolið peningaskáp. Tilkynningar um fjögur umferðarslys bárust lögreglu í gær. Í tveimur þeirra slasaðist fólk lítillega.