Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands, biður fólk að huga vel að þeim konum sem það þekkir og séu í hættu. Þetta gerir Drífa í Facebook-færslu sem hún birti fyrr í dag. Þar segir Drífa meðal annars: „Nú hafa tvær konur látist á heimilum sínum síðustu viku hér á landi og andlát þeirra rannsökuð af lögreglu. Heimili er ekki griðarstaður fyrir allar konur.”
Annað málanna sem Drífa vísar í kom inn á borð lögreglu í nótt þegar tveir karlmenn, annar um þrítugt og hinn á sextugsaldri, voru handteknir eftir að kona um sextugt fannst látin í heimahúsi í Hafnarfirði. Samkvæmt heimildum Mannlífs er um að ræða son og sambýlismann konunnar.
Sjá einnig: Andlát í Hafnarfirði: Sálgæsla boðin fyrir íbúa
Hitt málið sem forseti Alþýðusambandsins vísar í hefur lögregla haft til rannsóknar síðan 1. apríl, eftir að 52 ára gömul kona fannst látin á heimili sínu í Sandgerði. Var sambýlismaður konunnar, sem hafði tilkynnt andlátið, handtekinn þremur dögum síðar, en heimildir Mannlífs herma að krufning hafi leitt í ljós að andlát konunnar hafi borið að með saknæmum hætti. Hefur maðurinn verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 8. apríl.
Drífa vekur athygli á málunum tveimur á Facebook með fyrrnefndum orðum og bætir við í lokin: „Hugið vel að þeim konum sem þið þekkið og eru í hættu.” Með færslunni birtir hún grein af heimasíðu UN Women á Íslandi þar sem athygli er vakin á því að í sóttkvíum aukist meðal annars heimilisofbeldi. Sóttkví leiði til þess að konur séu berskjaldaðri fyrir ofbeldi.
Ýmsir taka til máls undir Facebook-færslu Drífu, þar á meðal lögmaðurinn og þingmaðurinn Helga Vala Helgadóttir, sem segir: „Þetta er fullkomlega hræðilegt.”