- Auglýsing -
Búið er að loka Hellisheiðinni vegna ófærðar.
Búið er að loka Hellisheiði vegna veðurs og ófærðar. Vindhraði mælist í krignum 20 metra á sekúndu á svæðinu og eru aðeins vel búnir bílar sem geta keyrt Þrengslin. Tekið skal fram að vegurinn um þrengsli er á óvissustigi.
Björgunarsveitir á Selfossi, Stokkseyri, Eyrarbakka, Þorlákshöfn, Hveragerði og í Reykjavík hafa verið ræstar út til að losa bíla sem eru fastir á heiðinni og í Þrengslunum.