Fundur hjúkrunarfræðinga og ríkisins fer fram klukkan hálfellefu í dag hjá ríkissáttasemjara, en síðasti formlegi fundur aðila var 24. mars.
Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari segir við RÚV að einhverjir óformlegir fundir hafi verið síðustu daga, og er hann vongóður um að fundurinn í dag beri árangur í deilu aðila.
Kjarasamningar hjúkrunarfræðinga hafa nú verið lausir í ár, en laun þeirra og kjaradeila þeirra við ríkið hafa verið mikið í umræðunni undanfarna daga og vikur. Hjúkrunarfræðingar segja að það skjóti skökku við að vera samningslausir, þegar þeir standa nú í framlínunni, ásamt fleiri í heilbrigðisstéttinni, í baráttunni við COVID-19 kórónuveirufaraldurinn.