Kona um sextugt fannst látin í heimahúsi í Hafnarfirði í nótt, en tilkynning um málið barst lögreglu um hálftvöleytið. Hún hélt þegar á vettvang, en konan var látin þegar að var komið.
Tveir karlar, annar um þrítugt og hinn á sextugsaldri, voru sömuleiðis á heimilinu og voru þeir báðir handteknir í þágu rannsóknarinnar. Rannsókn málsins er á frumstigi, en hún beinist meðal annars að því hvort mennirnir hafi átt þátt í andláti konunnar.
Í tilkynningu frá lögreglu segir að ekki sé hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.