- Auglýsing -
Keyrt var á 13 ára barn í Rimahverfi og kalla þurfti til sjúkrabíl.
Rétt eftir átta í morgun var keyrt á 13 ára barn þegar það var fara yfir gangbraut við hringtorg á Langrima að sögn vitna. Grunur leikur á að barnið hafi verið á hjóli en að sögn vitna lá hjólið á götunni við hlið bílsins sem keyrði á barnið. Þegar Mannlíf hafði samband við lögreglu gat hún ekki staðfest líðan barnsins.