Sýn hf. hefur gengið frá kaupum á Já hf.
Sýn hefur gengið frá kaupum á Eignarhaldsfélaginu Njálu, sem er móðurfélag Já hf. Áður hafði Samkeppniseftirlitið heimilað kaup Sýnar á Eignarhaldsfélaginu Njálu ehf. og Já hf.
Með afhendingu á Já, bætist við nýtt og öflugt vörumerki í hóp vefmiðla Sýnar sem samanstendur af Vísi, Tal, Bland og Spara vildarappi. Þá verður með kaupunum til ný tekjustoð í þjónustu við fyrirtæki og einstaklinga, meðal annars í kringum sýnileika og sölutorg.
„Það er mikið ánægjuefni að hafa nú fengið félagið afhent og innan tíðar bætist Vilborg Helga Harðardóttir, framkvæmdastjóri Já, og allt hennar framúrskarandi starfsfólk við mannauðinn hjá Sýn. Við bjóðum þau öll hjartanlega velkomin að taka þátt í þeirri sóknarvegferð sem fyrirtækið er á,“ segir Páll Ásgrímsson, forstjóri Sýnar, af þessu tilefni.
Vilborg Helga Harðardóttir, framkvæmdastjóri Já hlakkar til samstarfsins:
„Þetta eru spennandi tímamót fyrir Já. Við hlökkum til samstarfsins og þess að nýta styrkleika bæði Já og Sýnar til að efla enn frekar vöru- og þjónustuframboðið, viðskiptavinum og notendum til hagsbóta.“