Björn Birgisson vandar nýjum fjármálaráðherra ekki kveðjurnar í nýlegri Facebook-færslu.
Samfélagsrýnirinn frá Grindavík, Björn Birgisson skrifaði færslu á Facebook í gær, við frétt Vísis þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, nýskipaður fjármálaráðherra, segir hækkun launa í krónutölu ekki vera málið. Segir Björn að nú sé ballið byrjað. „Þá hlýtur lausnin í komandi kjaradeilu að felast í stórhækkuðum framlögum ríkissjóðs til þeirra sem alls ekki ná endum saman,“ skrifar Björn og spyr svo að lokum: „Hversu líkleg er þessi ríkisstjórn til að standa fyrir slíku?“
Færsluna má lesa í heild hér fyrir neðan:
„Ballið er byrjað!