- Auglýsing -
ORÐRÓMUR
Miklar hrókeringar hafa átt sér stað á fjölmiðlamarkaði undanfarið. Hringbraut, Fréttablaðið og DV eru komin í eina sæng. Víst er að Sigurður G. Guðjónsson, hæstaréttarlögmaður, meintur eigandi og stjórnarformaður útgáfu DV Frjálsrar fjölmiðlunar, má hrósa happi með að losna undan rekstrinum sem skilaði gríðarlegu tapi á líftíma sínum. Hann þarf væntanlega að finna leið til að lenda félaginu án þess að verða fyrir öðru hnjaski en þeim álitshnekk sem fylgir himinháu tapinu á félagi hans.