Gyða Valtýsdóttir heldur einstaka tónleika á kaffi Flóru.
Gyða Valtýsdóttir mun dáleiða gesti með töfrandi tónum, sellóleik og söng á einstöku tónleikum á kaffi Flóru. Fram kemur í auglýsingu um tónleikana að um ævintýralega kvöldstund er að ræða, umvafin plöntum, kertaljósi, haustilmi og tónlist sem hreyfir við innstu hjarta strengjum.
Gyða hefur komið víða við á tónlistaferlinum. Hún hlaut tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs árið 2019 fyrir tónlistarflutning. „Þar sem sköpunarkrafturinn brýst fram með afgerandi röddu, frumlegum hljóðfæraleik og miklum persónutöfrum,“ er meðal þess sem dómarar sögðu um hana af tilefninu.
Tónleikarnir verða annað kvöld, fimmtudaginn 26. október, á Kaffi Flóru í Grasagarðinum kl. 20. Hægt er að kaupa miða hér.