Íslendingar hafa lengi verið mikil bókaþjóð. Mörgum finnst ekkert betra en að sitja við kertaljós yfir vetrartímann og lesa grípandi ævisögu meðan börn heimilisins eru undir sæng með vasaljós að lesa um skrímsli og vofur. Það er úr mörgu að velja fyrir alla aldurshópa. Nú fer að styttast í jólin og bækur eru frábærar jólagjafir. En hvar er hagkvæmast að kaupa allar þessar ótrúlegu bækur?
Mannlíf fór stúfana og fékk svar við þeirri spurningu með verðathugun hjá helstu bókasölum landsins. Penninn Eymundsson, Bóksala stúdenta, Salka og Forlagið standa fremst meðal jafningja í þessum efnum og voru átta stórkostlegar bækur valdar handhófskennt og athugað hvort þessar verslanir ættu bækurnar og hvað þær kostuðu.
Frétt þessi birtist fyrst í nýjasta tölublaði Mannlífs sem er hægt að lesa hér.