Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra Íslands, segist vera framfylgja stefnu ríkisstjórnarinnar
Enn og aftur hefur komið upp deilumál í ríkisstjórn landsins. Snúa deilurnar nú um hjásetu Íslands í kosningu á vettvangi allherjarþings Sameinuðu þjóðanna um ástandið á Gaza en hjásetan hefur verið harðlega gagnrýnd. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur gefið það út að ekki hafi verið haft samráð við hana um þessa hjásetu. Bjarni Benediktsson svaraði Katrínu í viðtali við RÚV fyrr í dag.
„Í fyrsta lagi þá tel ég að við höfum verið að framfylgja þeirri stefnu sem að við höfum verið sammála um og ég sé ekki að það sé neinn áherslumunur í sjálfu sér á þeim skilaboðum sem við stöndum saman um í þessari ríkisstjórn að senda út frá okkur. Forsætisráðuneytið var upplýst um það með hvaða hætti atkvæði yrðu greidd við þessa atkvæðagreiðslu og eins líka hafði forsætisráðuneytið fengið send drög að ræðu sem til stóð að flytja,“ og var Bjarni spurður hreint út hvort forsætisráðuneytið hafi vitað að það stæði til að sitja hjá.
„Já, það hafði verið upplýst um það.“