Logi Einarsson, þingmaður, finnst samskipti Bjarnar og Katrínar sérstök.
Þingmaður Samfylkingarinnar Logi Einarsson er hissa á að ríkisstjórnin sé ekki sammála um utanríkisstefnu Íslands. Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra, og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hafa verið í deilum um helgina. Snúast deilurnar um hjásetu Íslands í kosningu á vettvangi allherjarþings Sameinuðu þjóðanna um ástandið á Gaza en hjásetan hefur verið harðlega gagnrýnd. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur gefið það út að ekki hafi verið haft samráð við hana um þessa hjásetu. Bjarni sagði svo í hádeginu að það sé ekki rétt og ráðuneyti Katrínar hafi vitað af hjásetunni. Eftir orð Bjarna sagði forsætisráðuneytið að því hefði borist tölvupóstur 11 mínútum fyrir atkvæðagreiðsluna þar sem greint var frá hjásetunni.
„Það sem er líka sérkennilegt við þetta er að fulltrúar ríkisstjórnarinnar eru ekki einhuga í málinu. Það hefur komið fram að forsætisráðherra er á sömu skoðun og ég, andstæð skoðun utanríkisráðherra, og þingflokkurinn allur,” sagði Logi um málið í samtali við mbl.is.
„Það er auðvitað alveg sjálfstæður hluti sem þarf að skoða, með hvaða hætti birtist ríkisstjórn Íslands fyrir hönd þjóðarinnar. En á endanum er það auðvitað aðalatriðið að þjóðir heims stígi fast til jarðar og reyni að stöðva þennan hrylling sem á sér stað þarna.”