Sigurður Þorkell Árnason er látinn, 95 ára að aldri.
Sigurður Þorkell er fyrrverandi skipherra hjá Landhelgisgæslunni en á tilkynning um andlát hans birtist á vef Gæslunnar í dag. Hann lauk fiskimannaprófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 1951, farmannaprófi tveimur árum síðar frá sama skóla og skipstjóraprófi frá varðskipadeild Stýrimannaskólans árið 1955. Fram kemur á vef Gæslunnar að Sigurður hafi verið aðeins 14 ára er hann fór fyrst á sjó. Árið 1947 hóf hann fyrst störf hjá varðskipum Landhelgisgæslunnar en árið 1959 varð hann skipherra. Fyrst sigldi Sigurður sem skipherra á varðskipinu Óðni en hann starfaði á öllum helstu varðskipum Íslands. Þá vann hann einnig á flugvélum og þyrlum Gæslunnar. Sigurður var ein af hetjum þorskastríðanna en hann var skipherra í þeim öllum. Var hann síðasti skipherra Gæslunnar sem tók þátt í að verja útfærslu fiskveiðilögsögunnar, í fjórar mílur 1952, í 12 mílur 1958, í 50 mílur 1972 og í 200 mílur árið 1975.
Sigurður var sæmdur ensku OBE-orðunni árið 1974 vegna björgunarafreks áhafnar varðskipsins Óðins er bjargaði áhöfn enska togarans Notts County, sem strandaði við Snæfjallaströnd í Ísafjarðardjúpi árið 1968. Þá hlaut hann einnig orðu frá bandaríska sjóhernum, var riddari hinnar konunglegu norsku heiðursorðu og hlaut fálkaorðuna árið 1976 fyrir landhelgisstörf. Aukreitis hlaut hann fjölmörg önnur verðlaun á ferlinum.
Mannlíf vottar aðstandendum Sigurðar innilegar samúðarkveðjur.