Lenya Rún Taha Karim, varaþingmaður Pírata birti ljósmyndir af sér og kærastanum Sigurjóni Guðjónssyni, rannsóknarsálfræðingi og X-stjörnu, þar sem þau bregða sér í hlutverk ofurparsins Júlíus Sesar og Kleópötru.
Íslendingar hafa í sífellt meira mæli tekið hrekkjavökunni opnum örmum og um liðna helgi voru haldnar fjöldi hrekkjavökupartý, með tilheyrandi búningagleði og fjöri. Lenya Rún og Sigurjón eða Siffi G eins og hann er betur þekktur sem, voru ein af þeim en þau voru hreint út sagt glæsileg sem Júlíus Sesar og Kleópatra. Verður að segjast að val þeirra hafi verið fullkomið, ofurpar í gervi ofurpars.
Einn vinur þeirra skrifaði við færsluna: „Þetta eru þau, þetta umtalaða ofurpar“
View this post on Instagram