- Auglýsing -
Fimmtíu prósent verðmunur er á poka með fimm kringlum í Nettó og í Bónus.
Bæjarins besta segir frá því á miðli sínum að poki sem inniheldur fimm kringlum, sem bakaðar eru á Ísafirði, sé 50 prósent dýrari í Nettó en í Bónus. Sjá má á verðmiðum sem Bæjarins besta birti, að í Nettó kosti kringlurnar 1.049 krónur en 698 krónur í Bónus. Segir í fréttinni að verðmunurinn verði ekki skýrður með flutningskostnaði, enda kringlurnar bakaðar á Ísafirði.
Bæjarins besta óskaði eftir skýringum frá Nettó á þessum mikla verðmun en hefur ekki enn borist svör.