Birta Abiba birti skemmtilegar ljósmyndir af sér úr Hrekkjavökupartýi þar sem hún klæðist áhugaverðum jólasveinabúningi.
Tískufyrirsætan og fyrrverandi fegurðardrottning Íslands, Birta Abiba Þórhallsdóttir, birti hressandi ljósmyndir af sér á Instagram þar sem hún sést klæðast jólasveinabúningi en miðað við það sem hún skrifaði við færsluna, voru þær teknar í Hrekkjavökupartýi: „Halloween > Christmas 🎅🏾 🎄“
Einn af fjölmörgum fylgjendum hennar á Instagram skrifaði spaugilega athugasemd við myndirnar: „Ég held að þessum jólasveini yrði kalt á Íslandi“.
Þessu svaraði Birta að bragði: „Jólasveinar eru með galdra, þeir finna aldrei fyrir kulda 😂🎄“.
Hér má sjá færsluna:
View this post on Instagram