„Það er hægt að réttlæta árás gegn hryðjuverkamönnum sem skjóta eldflaugum að frjálsum ísraelskum borgurum,“ sagði Bjarni Benediktsson um árásir Ísraelsmanna á Gaza í viðtali við fréttamann RÚV á dögunum.
Sema Erla birti klippu úr viðtalinu á samfélagsmiðlinum Instagram og segir:
„Og hér er utanríkisráðherra nú mættur til þess að réttlæta fjöldamorð og stríðsglæpi ísraelskra stjórnvalda á Gaza og tala fyrir meðalhófi í þjóðarmorði (hvað sem það þýðir!) 🤡“
Fréttamaður grípur þá orðið og spyr Bjarna, sem virðist pirraður á framígripinu: „En varla þegar skotið er þegar ungbörn og óbreyttir borgarar eru nálægt, er það?“
Þessu svarar Bjarni brúnaþungur: „Það er akkúrat meginatriðið – Það þarf að vera meðalhóf í aðgerðunum.“
Í lokin birtist samsett mynd af utanríkisráðherra með yfirskriftinni: Talsmaður meðalhófs í þjóðarmorðum.
View this post on Instagram
Sjá nánar:
Bjarni svarar gagnrýni: „Við getum ekki staðið með Ísraelsmönnum í sjálfsvarnarrétti sínum“