Björn Birgisson segir það skömm að Framsóknarmaður taki brátt við borgarstjórastólnum.
Samfélagsrýnirinn frá Grindavík, Björn Birgisson er síður en svo sáttur við að Einar Þorsteinsson taki við af Degi B. Eggertssyni sem borgarstjóri Reykjavíkur innan skamms.
„Það er hálf kaldhæðnisleg tilhugsun að eftir rúmlega einn og hálfan mánuð verði framsóknarmaður orðinn borgarstjóri í Reykjavík,“ byrjar færsla frá Birni. Og heldur áfram: „Fyrir það fyrsta hefur Framsóknarflokkurinn lengst af verið grútmáttlaus í borginni og hefur löngum stundum verið við það að hverfa.Svo kemur til sögunnar nýr maður, þekktur úr sjónvarpi en reynslulaus í pólitík, hann fær góða kosningu og verður skyndilega orðinn borgarstjóri!“ Að lokum segir Björn: „Að Framsóknarflokkurinn sé leiddur til forsætis í Reykjavík er vitaskuld ekkert annað en skömm fyrir þá sem að því stóðu! Þetta hljómar meira eins og lygasaga eða frumsaminn skrípaleikur en raunveruleikinn sjálfur.“
Færsluna má lesa hér fyrir neðan í heild sinni.