Daði Freyr Pétursson vill komast í Survivor.
Eurovision-stjarnan Daði Freyr Pétursson vill taka þátt í raunveruleikasjónvarpsþáttunum Survivor en hann sendi tvít til sjónvarpsþáttarins til að spyrja hvort að hann þurfi að vera bandarískur til að mega taka þátt. Þegar hann var spurður af hverju hann vill taka þátt í Survivor sagði hann einfaldlega að þátturinn væri sá besti í sögunni og hann langaði í eina milljón dala.
Þátturinn hefur notið mikilla vinsælda frá því að hann hóf göngu sína árið 2000 en hugmyndin að þættinum er byggð á sænsku þáttum sem heita Expedition Robinson en sá þáttur fór í loftið árið 1997. Enginn Íslendingur hefur tekið þátt í Survivor en hafa sumir aðdáendur þáttarins kallað eftir því að ein sería fari fram á íslenskri eyju.
Hey @survivorcbs , can I apply to be on the show if I have visa or do I need to be a full blown american?
— Daði Freyr 🍉 (@dadimakesmusic) November 7, 2023
because it's the best show of all times and I also want 1 million dollars
— Daði Freyr 🍉 (@dadimakesmusic) November 7, 2023