Sólveig Anna Jónsdóttir bendir á málflutning Morgunblaðins varðandi stríðið milli Ísrael og Hamas-liða á Gaza. Morgunblaðið kalli fólk sem mótmæli morðum ísraelska hersins á saklausu fólki í Palestínu, stuðningsmenn Hamas.
Verkalýðsforkólfurinn Sólveig Anna Jónsdóttir skýtur afar fast á Morgunblaðið á Facebook og notar til þess kaldhæðnina. Birti hún tvö skjáskot úr afar ósmekklegum fréttum úr Mogganum en í öðru þeirra er sagt að stuðningsmenn Hamas hafi mótmælt við sendiráð Bandaríkjanna í síðustu viku, sem hafi kallað eftir útrýmingu gyðinga. Í hinu skjáskotinu er sagt að þingið hafi „snúist á sveif með Hamas“ á dögunum.
Færsluna má lesa í heild sinni hér:
„Svona er umfjöllun Morgunblaðsins, sem við skattgreiðendur erum látin kosta með árlegum gjöfum upp á ríflega 100 milljónir, af mótmælum almennings vegna þjóðernishreinsana Ísrael á Gaza: Við erum ekkert annað en stuðningsmenn Hamas, og ekki nóg með það, við erum sek um að kalla eftir útrýmingu gyðinga. Já, kæra fólk, þegar þið komið saman og krefjist vopnahlés og þess að hætt verði að myrða saklaust fólk í Palestínu eruði í raun ekkert annað en bölvaðir nasistar. Þið eruð hinir raunverulegu þjóðar-morðingjar.