Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir Sean Aloysius Marius Bradley sem fæddur er 22. apríl 1957 og skráður til búsetu að Austurvegi 34 á Selfossi.
Sean er 167 sm hár. Hann er hreyfiskertur og gengur einungis stuttar vegalengdir án stuðnings.
Eftir því sem næst verður komist hélt hann til Malaga á Spáni í júni 2018, en ekki hefur frést af honum eftir það eða tekist að staðfesta hvar hann kunni að vera. Nánustu ættingjar Sean eru búsettir í Bretlandi og hafa óskað eftir því að lýst verði eftir honum á alþjóðavísu.
Þeir sem mögulega kunna að hafa upplýsingar um hvar Sean Bradley er að finna eða ferðir hans eru beðnir að koma þeim upplýsingum til lögreglunnar á Suðurlandi á netfangið [email protected] eða í síma 444 2000.