Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur tekið af skarið varðandi ólöglega innflytjendur og gripið til aðgerða til lausnar á máli sem hefur verið kostnaðarsamt og til mikilla vandræða. Í vikunni fór fyrsta flugvélin fullsetin með fólk frá Venesúela heim til
sín aftur. Um borð voru180 Venesúelabúar sem óskað höfðu eftir alþjóðlegri vernd á Íslandi
en verið hafnað þar sem lagaskilyrði voru ekki fyrir hendi. Fjölmargir hafa komið á þessum forsendum frá Vensuela til Íslands. Ferðaskrifstofur hafa meðal annars gert út á slík ferðalög. Vandi vegna hinna ólöglegu er þegar orðinn gríðarlegur og mikill baggi á samfélaginu.
Lítið fer fyrir gagnrýni á Guðrúnu vegna þessa fyrir utan fámenn mótmæli þeirra sem vilja að ferðaskrifstofuflóttamenn fái að vera í landinu án afskipta stjórnvalda. Forveri hennar, Jón Gunnarsson, var nánast fordæmdur af pólitískum andstæðingum fyrir aðgerðir sínar í úitlendingamálum. Guðrún er grjóthörð og á góðri leið með að sanna sig í embætti. Fleiri farþegavélar munu streyma frá landinu á næstunni með fólk frá Venesuela …