- Auglýsing -
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari karlaliðs Víkings, og María Builien Jónsdóttir, tölvunarfræðingur, eiga von á barni.
Gleðifréttirnar tilkynnti Arnar á Facebook-síðu sinni ásamt mynd af Maríu og skrifaði:„Hlökkum svo til að hitta þig. A perfect little stranger arriving Feb 2024.“ Parið á fyrir eina dóttur saman sem er fædd árið 2018 en Arnar á tvö börn úr fyrra sambandi. Við óskum fjölskyldunni til hamingju með væntanlegt kríli.