Páll Jónsson hefur átt erfitt uppdráttar síðan hann var hnepptur í gæsluvarðhald í stærsta fíkniefnamáli Íslandssögunnar. Páll, sem starfaði meðal annars við innflutning á timbri, féll í þá freistni langt genginn í sjötugt, að flytja inn kókaín. Hann og félagar hans voru gripnir með 100 kíló af kókaíni sem falinn voru í timburfarmi, sem fyrirtæki Páls, Hús og harðviður, flutti inn. Landsréttur dæmdi Pál í gær í níu ára fangelsi fyrir glæpinn. Hann hefur undanfarin misseri dvalið í fangelsinu á Hólmsheiði við mikla vanlíðan, eins og fram kom í viðtali við hann á Vísi í sumar.
Nú hefur hagur timburkaupmannsins vænkast og Páll er kominn á Kvíabryggju þar sem hann fær að ganga laus með nokkrum takmörkunum þó. Samkvæmt þessu hafa Páll Winkel fangelsismálastjóri og aðrir ráðamenn í fangelsismálum aumkað sig yfir hann. Páll timbursali verður kominn langt á áttræðisaldur þegar hann losnar …