Hinni árlegu Skíðaviku á Ísafirði um páskana hefur verið formlega aflýst í samræmi við samkomubann stjórnvalda. Í tilkynningu frá Skíðavikustjóra, Önnu Sigríði Ólafsdóttur, segir að ekkert verði af frekari markaðssetningu Skíðavikunnar í ár og ekki unnið að því að stefna fólki inn á svæðið um páskana.
Á vef Bæjarins besta kemur fram að Skíðavikan hafi tekið miklum breytingum frá því hún var fyrst haldin árið 1935 og hafi staðið af sér ýmsar hremmingar á þessum 85 árum. Hún hafi til dæmis verið felld niður árið 1949 vegna samkomubanns. Á þeim tíma hafi mænuveiki gengið yfir landið og víða verið gripið til samkomubanns.
Skíðavikan hefur verið haldin samfellt frá árinu 1979.
Blaðamaður bb.is reynir þó að eygja ljósglætu í myrkrinu og segir: „Það má þó segja að nokkur huggun harmi gegn er að allt útlit er fyrir að nægur snjór verði á Ísafirði um páskana, kannski meira en nóg.“
Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður, sem setur svip sinn á lífið á Ísafirði um páskana auk Skíðavikunnar, verður einungis send út á netinu í ár, án áhorfenda, og því ljóst að Ísfirðingar eiga í vændum mun rólegri páska en þeir eru vanir.