Nýlega var haldið útgáfuboð í húsnæði Sjávarklasans við Grandagarð í tilefni af útgáfu bókarinnar HEIMTIR ÚR HELJU: RÆTT VIÐ 12 SKIPBROTSMENN.
Svava Jónsdóttir blaðamaður tók viðtöl við 12 skipbrotsmenn um sjóslysin og afleiðingar þeirra og má þar nefna þunglyndi, einn vildi „klára það sem sjórinn kláraði ekki“, einn var óvinnufær í 20 ár vegna andlega áfallsins, annar greindist í kjölfarið með geðhvarfasýki og fór síðar í neyslu en hann kenndi sér um að tveir skipsfélagar hans drukknuðu og einn leitaði sér fyrst aðstoðar á þessu ári, áratugum eftir sjóslysið.
Flestir skipbrotsmennirnir mættu í útgáfuboðið þar sem harmonikkuleikari spilaði sjómannalög. Mennirnir sem um ræðir eru Gunnar Þór Hilmarsson, Dísarfelli, Gunnar Kristján Oddsteinsson, Ófeigi, Gunnar Scheving Thorsteinsson, Tungufossi, Hafsteinn Garðarsson, Krossanesi, Hilmar Þór Jónsson, Bjarma, Hjalti Ástþór Sigurðsson, Unu í Garði, Jón Gunnar Kristinsson, Æsu, Jón Snæbjörnsso, Suðurlandi, Júlíus Víðir Guðnason, Suðurlandi, Valdimar H. Sigþórsson, Suðurlandi, Þorsteinn K. Ingimarsson, Bjarma, og Örlygur Rúdólf Guðnason, Andra. (Myndir: Helgi Jónsson og fleiri.)