Stórleikarinn Michael B. Jordan slapp með skrekkinn á laugardagskvöldið þegar hann missti stjórn á Ferrari bifreið sinni en hún lenti á KIA bíl sem hafði verið lagt í stæði. Sjónarvottar segja að Jordan hafi ekki getað gefið lögreglu neina skýringu á atvikinu þegar lögreglan spurði hann út í málið á slysstað. Ekki er talið að leikarinn hafi verið undir áhrifum vímuefna þegar slysið átti sér stað. Enginn slys urðu á fólk en miklar skemmdir urðu á bílunum tveimur.
Leikarinn ætti þó að geta keypt sér nýjan Ferrari en hann hefur verið einn af vinsælstu leikurum heimsins undanfarins áratugs fyrir leik sinn í Creed-myndunum, Black Panther-myndunum og Fruitvale Station.
Hægt er að sjá myndband bílarústunum hér.