Fjórir karlmenn hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 10. apríl að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á fíkniefnamáli.
Mennirnir voru handteknir í aðgerðum lögreglunnar í og við Hvalfjarðargöng í lok síðasta mánaðar, en lagt var hald á talsvert af fíkniefnum í tengslum við málið.
Kona sat einnig í gæsluvarðhaldi um tíma í þágu rannsóknar, en hún er nú laus úr haldi lögreglu.
Rannsókn málsins miðar vel, samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni.
Sjá einnig: Fimm handteknir í morgun í aðgerðum lögreglu