Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson er trúlofaður en söngvarinn síkáti greindi áhorfendum á tónleikum frá þessu um helgina samkvæmt mbl.is. Heitmaður Páls er frá Venesúela og sagði Páll á tónleikunum að þetta yrðu fyrstu jólin sem þeir væru saman og hann væri fullur tilhlökkunar.
Páll hefur lengi verið einn af þekkustu og færustu tónlistarmönnum Íslands og hefur kennt sig við ástina og bjó hann til persónuna Dr. Love á sínum tíma við frábærar undirtektir landsmanna. Þá hefur hann gefið út fjölda laga sem tengjast ástinni og þekkja flestir lagið Allt fyrir ástina.
Páll skellti sér fyrir stuttu í veitingahúsrekstur en hann opnaði staðinn Pizza 107 fyrir stuttu með Valgeiri Gunnlaugssyni.
„Sama hvernig fer
Stendur eftir staðreyndin
Að ég elska þig
Og því fær engin breytt
Sama hvernig var
Ég gæti gefið annan séns
Einu sinni enn
Allt fyrir ástina
Eina sem aldrei nóg er af
Mennirnir elska,fórna
Kveljast,þjást og sakna
Allt fyrir ástina
Sama hvað lífið gæfi mér
Ég segi út með hatrið
Inn með ástina
Sá sem elskar mest
Vonar allt og umber allt
Þó að svikull þú sért
Ég fyrirgef þér samt
Allt þitt,jafnt verst og best
Ég gæti tekið á herðar mér
Geri hvað sem er
Allt fyrir ástina………“