Áætlaður kostnaður fyrir hvern þátttakanda umhverfis-, orku- og loftslagráðuneytisins á COP28 er frá 900.000 krónur og upp í tvær milljónir króna.
COP28 loftlagsráðstefnunni í Sameinuðu arabísku furstadæmunum lýkur á morgun en gríðarlega margir Íslendingar eru þar sem fulltrúar ríkisins, Reykjavíkurborgar, fyrirtækja og félagasamtaka og fleiri aðila sem við kemur loftslagsmál.
Mannlíf sendi fyrirspurn á upplýsingafulltrúa umhverfis-, orku- og loftslagráðuneytisins, Önnu Sigríði Einarsdóttur, þar sem spurt var um kostnað og földi fulltrúa Íslands á ráðstefnunni í Dúbaí.
„Rúmlega 80 þátttakendur frá Íslandi eru skráðir á COP28 eða taka þátt í hliðarviðburðum tengdum loftslagsráðstefnunni. Í þeim hópi eru auk 12 fulltrúa hinnar opinberu sendinefndar, þingmenn og fulltrúar Reykjavíkurborgar, félagasamtaka og 18 fyrirtækja á sviði endurnýjanlegrar orku, kolefnisföngunar og –geymslu og önnur fyrirtæki á sviði grænna lausna,“ segir í svarinu en þar kemur fram að lítil breyting hafi verið á fjölda fulltrúa í opinberri sendinefnd Íslands og henni tengdri, á milli ára en að veruleg fjölgun hafi verið í hópi fulltrúa þeirra fyrirtækja sem kusu að senda á viðburði tengda loftlagsráðstefnunni.
Hvað varðar kostnað sem fylgir fulltrúum ráðuneytisins segir í svarinu að umhverfis-, orku- og loftslagráðuneytið greiði fyrir þátttöku sex fulltrúa ráðuneytisins í sendinefndinni en að áætlaður kostnaður á mann sé frá 900.000 krónur til 2.000.000 krónur, samanlagt frá 5,4 milljónum til 12 milljónum.
„Umhverfis-, orku- og loftslagráðuneytið greiðir eingöngu kostnað vegna þátttöku 6 fulltrúa ráðuneytisins í sendinefndinni, þar með talið vegna ráðherra og aðstoðarmanns, auk þess að styrkja fulltrúa ungmenna til þátttöku á fundinum. Er þetta í þriðja sinn sem fulltrúi ungmenna er í hinni opinberu sendinefnd. Þátttaka fulltrúa ráðuneytisins í fundum og viðburðum á COP28 krefst mislangrar veru úti. Áætlaður kostnaður pr. þátttakanda frá ráðuneytinu er því mismunandi, en getur verið á bilinu 900.000-2 m.kr. Endanlegur kostnaður liggur ekki fyrir fyrr en eftir að Loftslagsráðstefnunni lýkur.“
Ekki gat Anna svarað fyrir önnur ráðuneyti en líklegt er að kostnaðurinn sé svipaður hjá þeim.