Sprenging varð í sumarbústað í Langadal, nærri bænum Geitaskarði, um klukkan ellefu í morgun. Þrír voru fluttir á slysadeild á Akureyri, tveir þeirra með sjáanlega áverka. Einstaklingarnir eru þó ekki taldir í lífshættu.
RÚV greinir frá.
Sex einstaklingar, allt ungt fólk, voru í bústaðnum þegar sprengingin varð. Fjölmennt lið lögreglu, slökkviliðs og björgunarsveita fór á vettvang og þurfti að losa fólið úr braki bústaðarins þegar björgunarfólk kom á staðinn.
Tæknideild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er á leiðinni norður til að rannsaka vettvang.