Braugher átti að baki farsælan sjónvarpsferil en þekktastur var hann fyrir hlutverk sín í Homicide: Life on the Streets, Thief og Brooklyn Nine-Nine en hlaut hann fjölmargar tilnefningar og verðlaun fyrir leik sinn í gegnum árin.
Terry Crews, samleikari Andre úr Brooklyn Nine-Nine, skrifaði minningarorð á Instagram þar sem hann sagðist meðal annars ekki trúa því að hann væri farinn svo snemma. „Það er mér heiður að hafa þekkt þig, hlegið með þér, unnið með þér og eytt átta dýrðlegum árum í að fylgjast með einstökum hæfileikum þínum. Þetta meiðir. Þú fórst of snemma. Þú kenndir mér svo mikið. Ég mun að eilífu vera þakklátur fyrir að fá að kynnast þér. Takk fyrir vísdóm þinn, ráð þín, góðmennsku og vinskap. Dýpstu samúðarkveðjur til eiginkonu þinnar og fjölskyldu á þessum erfiðu tímum. Þú sýndir mér hvernig á að lifa lífinu vel. Hvíldu í friði Andre. Ég elska þig.“
Melissa Fuemo, sem leikur Amy í Brooklyn Nine-Nine hefur ekki enn sagt neitt vegna andlátsins en birti ljósmynd í Story á Instagram í dag, af tómum stól á skrifstofu Captain Holt.
Andre lætur eftir sig eiginkonuna Amy og þrjá syni.
TMZ sagði fyrst frá andlátinu.
Hér má sjá nokkur góð augnablik hjá Andre í Brooklyn Nine-Nine: