Gísli Jónsson, fyrrum framkvæmdarstjóri, er látinn eftir erfið veikindi. Hann var 78 ára gamall. Akureyri.net greinir frá. Gísli fæddist á Akureyri árið 1945 og bjó mestalla ævi þar. Foreldrar Gísla voru þau Jón Egilsson og Margrét Gísladóttir. Gísli kvæntist Þórunni Kolbeinsdóttur og eignuðust þau saman tvö börn. Gísli starfaði hjá hinum ýmsu bönkum og fjármálafyrirtækjum frá 1963 til 1976, bæði á Akureyri og í Reykjavík. Eftir að hafa flutt aftur til Akureyrar árið 1976 tók hann við rekstri Ferðaskrifstofu Akureyrar og Sérleyfisbíla Akureyrar af föður sínum. Hann skipti þó um gír árið 1993 og kom að rekstri margra fyrirtækja eftir það en hann rak Sjallann í nokkur ár og var einn af eigendum Hótel Norðurlands.