Björn Birgisson skrifaði hnyttna Facebook-færslu um þá hefð að horfa ekki á Gísla Martein á föstudagskvöldum.
Samfélagsrýnirinn frá Grindavík, Björn Birgisson horfir aldrei á Vikuna með Gísla Martein, sem er í sýningu á RÚV á föstudagskvöldum. Og það breytist ekki þó hann og Ingibjörg kona hans búi tímabundið annarsstaðar vegna ástandsins í Grindavík. Í nýrri færslu skrifar hann um þetta en tekur fram að ekki sé þetta vegna þess hve slæmur sjónvarpsmaður Gísli Marteinn er. „Ekki vegna þess að hann sé vondur í sjónvarpi, miklu heldur vegna þess hvernig ég er sem áhorfandi!“ segir Björn og útskýrir svo orð sín. „Mér finnst gaman – jafnvel notalegt – að ræða við fólk á lágstilltum afslöppuðum nótum.Ég þoli ekki samtöl þar sem fólk æpir hvert á annað – algjörlega að tilefnislausu. Einmitt þess vegna vil ég ekki horfa á þátt Gísla Marteins.“ En í húsinu sem þau hjónin dvelja nú í, er ekkert sérherbergi fyrir Björn að vera í á meðan frúin horfði á Gísla Martein, líkt og á heimili þeirra í Grindavík. En hann er með ráð undir rifi hverju. „Með nútíma tækni má leysa þetta vandamál með góðum heyrnarhlífum – ef ekki þá með fjarveru.“