Baráttumaðurinn Þorsteinn V. Einarsson hefur beðið Esteri Harðardóttur, innkaupastjóra Bónuss, afsökunar á þeirri aðför sem hann stýrði gegn henni eftir að Bónus afþakkaði að hafa bók hans og eiginkonu hans, Þriðju vaktina, til sölu í verslunum.
Þorsteinn birti harmi þrungna færslu á Instragram þar sem hann skoraði á 3000 fylgjendur sína að senda póst á Ester og krefjast þess að hún tæki bókina í sölu. Þetta blöskraði mörgum og Þorsteinn fékk ekki þá samúð sem hann væntanlega þráði. Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss, sagði ío fjölmiðlum að enginn hefði spurt eftir bókinni í Bónus.
Nú hefur Þorsteinn beðist afsökunar með þeim orðum að þarna hafi verið á ferð „kallalegt yfirlæti.“ Iðrunin er þó fremur hjáróma ef litið er til þess að hann slær á létta strengi og býðst til að senda Ester bókina áritaða. Hann hefur samt upp úr krafsinu að nú vita margir af bókinni sem Bónus hafnaði …