- Auglýsing -
Tónlistarmaðurinn og stórsöngvarinn Geir Ólafsson stóð að sýningunni Christmas Las Vegas Show með miklum glæsibrag. Tónleikarnir og matarveislan voru í Gamla bíói þar sem fjöldi innlendra og íslenskra listamanna stigu á svið. Fyrir utan sjálfan stórsöngvarann er óhætt að fullyrða að Herbert Guðmundsson hafi sungið sig inn í hjörtu áheyrenda.
Geir sagði í Mannlífi fyrir tónleikasyrpuna að vegna dræmra undirtekta yrði þetta í síðasta sinn sem hann héldi þessa tónleika. En svo tók aðsóknin við sér og Geir gaf út á lokatónleikunum að hann myndi mæta með sitt lið aftur að ári. Hann er hættur við að hætta …