Í skoðanakönnun Mannlífs í gær voru lesendur spurðir hvort þeir væru hlynntir tímasetningu verkfallsaðgerða flugumferðastjóra. Rétt rúmur helmingur er sammála tímasetningunni eða 50,8 prósent. Ósammála henni eru 48,2 prósent. Óvissir eru eitt prósent þátttakanda.
Haft var eftir innviðarráðherra að: „… Mikill ábyrgðarhluti að vera í svona aðgerðum á þessum tíma rétt fyrir jól og beint ofan í þær náttúruhamfarir sem hafa sannarlega kostað samfélagið verulega hluti og ekki síst kannski ferðaþjónustuna.“
Í kjölfar eldgossins sem hófst á ellefta tímanum í gærkveldi ákváðu flugumferðastjórar að draga til baka fjórðu lotu verkfallsaðgerðar sinnar sem átti að vara frá klukkan fjögur að nóttu til tíu á miðvikudagsmorgun.