Átta einstaklingar sóttu um starf forstjóra Veðurstofu Íslands en starfið var auglýst laust til umsóknar í nóvember og rann umsóknarfresturinn út 11. desember. Nýr forstjóri mun taka við af Árna Snorrasyni hefur starfað sem forstjóri Veðurstofu Íslands frá 2010 við gott orðspor.
Umsækjendur eru:
- Fannar Karvel Steindórsson, framkvæmdastjóri
- Haraldur Ólafsson, prófessor
- Hildigunnur Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri
- Ingvar Kristinsson, framkvæmdastjóri athugunar- og upplýsingatæknisviðs Veðurstofu Íslands
- Ívar Kristinsson, sérfræðingur
- Matthew James Roberts, framkvæmdastjóri þjónustu- og rannsóknasviðs Veðurstofu Íslands
- Sigríður Auður Arnardóttir, fyrrverandi ráðuneytisstjóri
- Sigurður Erlingsson, rekstrarhagfræðingur
„Helstu verkefni Veðurstofu Íslands eru að annast vöktun vegna náttúruvár, að sjá um rekstur veðurfræðilegra grunnkerfa og annast veðurþjónustu. Auk þess að sinna vatnamælingum og að annast mælingar á snjóalögum. Einnig sinnir stofnunin mælingum á hvers kyns jarðhræringum auk þess að safna upplýsingum um eldgos og öskufall en jafnframt að vinna hættumat vegna náttúruhamfara ásamt öðrum rannsóknum á starfssviði stofnunarinnar,“ sagði á vef stjórnarráðsins en tæplega 150 manns vinna á Veðurstofunni.