Föstudagur 27. desember, 2024
3.8 C
Reykjavik

Segir „hugvillu“ almennings í seinni heimstyrjöldinni endurtaka sig í dag: „Jólapakkarnir á Gaza“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Kristinn Hrafnsson bendir með köldum hætti á sinnuleysi margra þegar snýr að þjóðarmorðunum sem eiga sér stað í rauntíma og í beinni útsendingu á Gaza, í nýrri færslu á Facebook.

Færslan er stutt en sterk. Þar líkir hann sinnuleysi almennings varðandi það sem er að gerast á Gaza, við sinnuleysi þýsku þjóðarinnar í seinni heimstyrjöldinni. Birti hann skjáskot við færsluna, frá frétt af nýjustu dánartölu Palestínumanna en hún er komin upp í að minnsta kosti 19.677 manns. Ljósmynd af látnum börnum í reifum fylgir fréttinni.

Færslan:

„Jólapakkarnir á Gaza.

„Gjafir“ ísraelska hersins.
Það hefur vakið endalaus heilabrot hvernig þýska þjóðin gat hrunið í hugvilluna sem hvolfdist yfir hana á fjórða áratug síðustu aldar.
Áhugasamir geta fræðst um það í gegnum speglun þeirra villu í okkar samtíma.“

Lilja nokkur skrifar athugasemd við færsluna þar sem hún furðar sig á orðum Kristins. „getur þú útskýrt nánar hvað þú meinar ? Ég vil ekki trúa því að þú sért í alvörunni að segja það sem ég les út úr þessu.“

Þessu svarar Kristinn um leið: „Það sem ég skrifa er skýrt og ekkert flókið að skilja það. Að þú skulir eiga erfitt með að trúa þínum skilningi er einmitt huti af vandanum.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -