- Auglýsing -
Söngdívan Mariah Carey er orðin einhleyp ef marka má bandarísk slúðurblöð en söngkonan er hætt í sambandi með Bryan Tanaka, sem hún hafði verið með síðan 2016. Að sögn aðstandenda Carey vildi hinn fertugi dansari verða faðir en hin 54 ára Carey hafði engan áhuga á slíku svo þau ákváðu að slíta sambandinu. Þau hafa þekkst síðan 2006 en hann var dansari á tónleikum hjá söngkonunni í fjölda ára eftir það.
Mariah Carey á sjálf þrjú börn með Nick Cannon og virðist það vera nóg fyrir hana.