- Auglýsing -
Hundrað jarðskjálftar mældust í gær á Reykjanesi og dagurinn því heldur rólegur. Frá miðnætti hafa mælst 20 litlir skjálftar en fundað verður í dag vegna mögulegrar kvikusöfnunar undir Svartsengi.
Sérfræðingar munu þar fara yfir málin en mögulegt þykir að kvikusöfnun sé hafin á ný á svæðinu. Að loknum fundi verður fundað að nýju með almannavörnum klukkan 13:00.