Einn mesti áhrifavaldur Íslands þar sem kemur að bókmenntum er Kolbrún Bergþórsdóttir, bókmenntagagnrýnandi Kiljunnar. Kolbrún er mikil tilfinningavera þar sem bækur og höfundar þeirra eru annars vegar og er óspör á lof og last. Kolla varð goðsögn á þessu sviði á sínum tíma þegar hún tók upp á því að gefa hauskúpu sem lægstu einkunn í stað þess að halda sig við fáar eða margar stjörnur.
Í liðinni viku var komið að henni að taka andköf þegar hún gaf Borg hinna dauðu eftir Stefán Mána sína hæstu einkunn. „Stuttu eftir að ég fékk þessa bók í hendurnar kyssti ég hana í einrúmi,“ sagði hún um nýjustu glæpasögu Stefáns Mána þar sem Hörður Grímsson kemur enn og aftur við sögu. Kolbrún skýrir nánar hrifningu sína á bókinn. „Af því að ég elska Hörð Grímsson. Hann er dásamleg týpa.“
Bókin er tilnefnd til Blóðdropans, íslensku glæpasagnaverðlaunanna. Víst er að einkunn Kolbrúnar á einnig eftir að hjálpa Stefáni Mána í jólabókaflóðinu hrikalega þar sem barist er upp á líf og dauða …