Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels hefur sagt ríkið ætla sér að ganga enn harðar fram í baráttu sinni við hryðjuverkasamtökin Hamas og árásum á Palestínu á næstu dögum. Breska ríkisútvarpið greindi frá þessu en eftir að hann heimsótti Gasaströndina í gærmorgun sagði hann flokki sínum að hernaðaraðgerðum Ísraels á Gasa væri hvergi nærri lokið.
Anthony Blinken hvatti Ísrael í gær til þess að draga úr þunga árásanna en rúmlega 20 þúsund manns hafa verið myrtir í árásunum. Tæplega hundrað manns létust í loftárásum á Al-Maghazi flóttamannabúðirnar á Gasa á aðfangadagskvöld en stór hluti þeirra sem hafa látist eru börn.