Ræningjar hafa farið ránshendi um Grindavík ef marka má frásögn Arons Ágústsson íbúa í Grindavík. Hann segir að gaskútar hafi horfið frá sér og nágrönnum sínum. Þetta uppgötvaði hann í gær þegar hann lagði leið sína í bæinn yfirgefna. Vefmiðillinn Vísir greinir frá þessu og ræðir við Aron sem lýsir undrun sinni á því að óprúttnir aðilar komist inn í bæinn og að munir hverfi þrátt fyrir fullyrðingar lögreglustjóra um að ekkert sé að óttast.
„Hjá mér vantar bara gaskút og ábreiðuna á grillið og hjá nágrönnum mínum voru tveir gaskútar teknir. Fjárhagslega er þetta ekki stórt tjón en það að óviðkomandi aðilar komi hér inn í þeim tilgangi að stela er það sárasta í þessu,“ segir Aron í samtali við Vísi.
Nágranni Arons náði tveimur mönnum á myndband í öryggismyndavél. Hann hringdi í lögregluna til að tilkynna atvikið en fékk þau svör að hann ætti að mæta á lögreglustöðina á skrifstofutíma til að kæra.
Ströng gæsla er allan sólarhringinn við þrjár inngönguleiðir til Grindavíkur. Mannlíf ræddi í gær við björgunarsveitarmann sem var við gæslu á mörkum Grindavíkurvegar og Reykjanesbrautar. Hann sagðist hafa fyrirmæli um að hleypa engum inn í bæinn nema spyrja um lögheimili viðkomandi. Engir nema Grindvíkingar mættu fara um Grindavíkurveg.
Aron gagnrýnir í samtali við Vísi að gæslan sé laus í reipum og þess vegna komist óprúttnir aðilar inn í bæinn. „Þetta kemur mér ekkert á óvart, ekki miðað við það hvernig staðið hefur verið að gæslunni inn í bæinn. Ég hef aldrei verið spurður að nafni, kennitölu, heimilisfangi. Ég er bara spurður að því hvort ég sé að fara heim og mér svo hleypt inn,“ segir Aron.