Samningar náðust í nótt á milli aðlidarfélaga BSRB og viðsemjenda þeirra hjá ríki, Reykjavíkurborg og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir þetta vera góðar fréttir sem berast í morgunsárið.
„Þessir samningar fela í sér stór framfaraskref en þar ber hæst kerfisbreytingu á vaktavinnufyrirkomulagi og styttingu vinnutíma. Það eru mál sem munu skipta verulegu máli til að auka lífsgæði fólks, ekki síst stórra kvennastétta,“ skrifar Katrín í Facebook færslu.
„Lífskjarasamningarnir voru mikilvægt leiðarljós og að sjálfsögðu skipta aðgerðir stjórnvalda sem kynntar voru í tengslum við þá máli; eins og skattkerfisbreytingar sem koma hinum tekjulægstu best, lenging fæðingarorlofs, efling almenna íbúðakerfisins og fleira. Það er erfitt verkefni að landa samningum en það tókst. Góðar fréttir nú í morgunsárið.“