- Auglýsing -
Instagram fór bókstaflega á hliðina í gær þegar Dwayne „The Rock“ Johnson birti sprenghlægilegt myndskeið á samfélagsmiðilinn.
Í myndbandinu birtist Johnson hryllilega hallærislegur, klæddur í föt sem voru í tísku á tíunda áratug síðustu aldar, allt frá gallabuxum, mittisveski og til gullkeðju yfir rúllukragapeysu. Þá skartaði hinn nauðasköllótti leikari myndarlegri hárkollu í stíl við fötin. Og svo syngur hann jólalag með breyttum texta, en þar dásamar hann tíunda áratuginn. Yfir fimm milljónir manna hafa líkað við færsluna á aðeins einum degi, sem verður að teljast ansi gott.
Myndskeiðið fyndna má sjá hér fyrir neðan:
View this post on Instagram